Staðgenglar statista

Í Fréttablaðinu í dag er hreint unaðslegt vísdómsbrot á bls. 40 undir yfirskriftinni: Vissir þú ... Þar er fullyrt að í kvikmyndinni um Gandhi hafi verið flestir staðgenglar í kvikmyndasögunni eða um 300.000. Einhver hefur nú leikarafjöldinn verið fyrst staðgenglar voru svo margir því venjan er yfirleitt sú að hafa aðeins staðgengla fyrir aðalleikarana. Síðan eru taldar upp þær kvikmyndir þar sem staðgenglar voru heldur færri eða eitthvað á annað hundrað þúsund manns. Já, mikið eru nú staðreyndirnar oft furðulegar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þeir eru góðir í málskilningi og þýðingum þarna.....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.9.2007 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband