Jólaatið búið

Nú er jólaatið búið á þessum bæ og kominn tími til að snúa sér að því sem skiptir máli og það er að þakka ykkur bloggvinum mínum fyrir árið og óska ykkur gleðilegra jóla. Ég hef haft ómælda ánægju af að lesa færslurnar ykkar, blanda mér í umræður og gjamma og gaspra. Hafið það gott um jólin og megi árið 2008 vera ykkur öllum farsælt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Gleðileg jól Steingerður og fjölskylda.

Takk fyrir skoðanaskiptin á árinu, og vonandi eigum við frekari skoðanaskipti á næsta ári.

Alltaf gaman að ræða við fólk með rökhugsun í lagi, án þess að tapa húmornum.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 23.12.2007 kl. 13:33

2 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Sendi mínar bestu óskir um gleði og frið á jólunum til þín og þinna.
Þakka samveruna í bloggheimum á árinu sem er að líða. 

Megi nýtt ár færa ykkur enn meiri gleði og hamingju.

Jólakveðja

Linda Lea Bogadóttir, 23.12.2007 kl. 17:19

3 identicon

Elsku Steingerður bestu jóla og nýársóskir til ykkar Gumma og barnanna.

Þökkum frábærar samverustundir á árinu.

Kveðja Alma og Jóel

Alma (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 21:03

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þakka fyrir góða speki á árinu sem er að líða, þó ég hafi ekki uppgötvað þig fyrr en (of?) seint á árinu. Vona að jólin færi þér og þínum frið og fögnuð og hlakka til að eiga meiri samskipti við þig á nýju ári.

  

Hrönn Sigurðardóttir, 23.12.2007 kl. 21:05

5 Smámynd: Gúnna

Elsku Steingerður

Óska þér og þínum gleði og friðar um hátíðarnar. Kærar þakkir fyrir innlit á mitt blogg.

Knús úr Mosó.

Gúnna, 24.12.2007 kl. 01:58

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleðileg jól Steingerður og takk fyrir frábæra viðkynningu í bloggheimum. Góðar stundir um hátíðarnar. Hlakka til að hitta þig á nýja árinu, bæði í raunheimum og bloggheimum

Marta B Helgadóttir, 24.12.2007 kl. 09:37

7 Smámynd: Aðalheiður Magnúsdóttir

Gleðileg jól og farsælt komandi ár til þín og Gumma  Þakka fyrir skemmtileg blogg samskipti á árinu sem er að líða.

Aðalheiður Magnúsdóttir, 26.12.2007 kl. 17:28

8 Smámynd: Hugarfluga

Vona að þú sért búin að hafa það rosa gott á jólunum!

Hugarfluga, 26.12.2007 kl. 17:37

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Gleðilega jólarest, Steingerður, þakka þér innilega gefandi bloggsamveru á árinu!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.12.2007 kl. 23:13

10 Smámynd: Gúnna

Gleðilega rest mín kæra og bestu óskir um gæfu og gleði til þín og þinna á nýja árinu. Takk fyrir heimsóknirnar á mitt blogg og góðar kveðjur.

Knús úr Mosó

Gúnna, 1.1.2008 kl. 04:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband