Aumingjakakan

Í gærmorgun fór ég út í bakarí og keypti ýmis konar gúmmelaði með morgunverðinum/brunchinum fyrir fjölskylduna. Meðal þess sem ég kom heim með var kaka sem ekki teldist til sérlegra tíðinda nema af því að hún var græn að ofan. Lokahnykkur á verki bakarans var sem sé að setja grænt marsípan ofan á kökuna og baka hana svo. Marsípanið bráðnaði niður og sumsstaðar stóðu uppi litlar brúnar eyjar af kökudeigi. Hvernig í ósköpunum datt þér í hug að kaupa græna tertu? Spurði maðurinn minn. Þetta er einstaklega óaðlaðandi á að líta. Ég vorkenndi henni, svaraði ég. Einmitt af því að hún var svona græn og viðbjóðsleg var ég alveg viss um að enginn myndi kaupa hana. Minn ektamaki horfði á mig litla stund og sagði svo: Það er versta er að ég er sannfærður um að þessi skýring þín á kaupunum er rétt. Aumingjakakan situr nú niður á eldhúsborði og þeir einu sem hafa snert á henni eru ég og hundurinn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú ligg ég í hláturskasti, af því að ég þekki þetta element.  Takk fyrir að ættleiða þessa ljótu köku.  Litla krúttið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.4.2008 kl. 14:09

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Bakarinn hefur greinilega bakað þessa köku alveg spes fyrir þig, Steingerður mín.

Þorsteinn Briem, 20.4.2008 kl. 16:02

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Nú hló ég upphátt, þetta er mögnuð ástæða til að kaupa köku! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.4.2008 kl. 17:44

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Aumingja kakan..........

Hrönn Sigurðardóttir, 20.4.2008 kl. 21:19

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Frábær!

Marta B Helgadóttir, 20.4.2008 kl. 21:54

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég vona sannarlega að þið hafið á endanum borðað aumingja kökuna, annars yrði hún svo leið yfir óendanlegu tilgangsleysi tilveru sinnar allrar. 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.4.2008 kl. 22:08

7 Smámynd: Aðalheiður Magnúsdóttir

Góð. En hvernig smakkaðist kakan samt? Því er þannig varið með mig að mér er illa við matarlit af þeirri ástæðu þá ber ég fram grænan en ekki rauðan rabbabara graut þegar ég myndast til að sjóða hann, sumum fannst þetta ógeðslegt í fyrstu en viti menn hann var alveg eins á bragðið og sá rauði

Aðalheiður Magnúsdóttir, 21.4.2008 kl. 07:53

8 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þú ert klók Steingerður, situr ein að grænu kökunni sem eflaust er bragðgóð, það á alla vega við um ávexti, að því ljótari, því betri á bragðið.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 21.4.2008 kl. 09:03

9 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, græna kakan var bara reglulega góð og Þorsteinn sér í gegnum mig. Að sjálfsögðu sá ég mér leik á borði að fá að sitja ein að kræsingunum.

Steingerður Steinarsdóttir, 21.4.2008 kl. 10:18

10 Smámynd: Svava S. Steinars

Þú mannst eftir hænutertunni sem mamma býr til, með bleika glassúrnum ?  Einu sinni bar hún hana á borð heiðgræna.  Í ljós kom að rauði matarliturinn var búinn og sú gamla greip bara þann næsta.  Hún var alveg jafn góð á bragðið, en var samt ekki alveg eins lokkandi.

Svava S. Steinars, 22.4.2008 kl. 10:36

11 identicon

Steingerður mín á ég ekki bara að skreppa í kaffi til þín og hjálpa þér með kökuna? það er orðið svo langt síðan ég kom til þín síðast

María E (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 12:27

12 identicon

Aumingjakökukaupin er auðvitað enn ein birtingarmynd hjartagæsku þinnar; þú sem ekkert aumt mátt sjá. Og kemur ávallt til bjargar - grænum kökum, dýrum, börnum og konum í nauð.

Gumma hefur örugglega fundist sú græna vera lostæti. 

Hrund H (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 09:25

13 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Mín reynsla af kökum er sú að oft eru þær sem eru hvað ljótastar, bestar á bragðið. Systir mín bakar alltaf eina dýrðlega köku sem er allgjört lostæti og heitir "Ljóta kakan". Hún ber nafn með rentu því ekki er fyrir fegurðinni að fara. Hvernig smakkaðist svo græna kakan?

Sigurlaug B. Gröndal, 24.4.2008 kl. 11:06

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleðilegt sumar Steingerður og takk fyrir skrifin þín í vetur

Marta B Helgadóttir, 24.4.2008 kl. 13:25

15 Smámynd: Gúnna

Allt er vænt sem vel er grænt!!! Hér á heimilinu eru stundum snæddar grænar og/eða  bleikar pönnukökur

Hvort sem það eru nú kökur, pakkar eða bara við mannfólkið er það ekki útlitið sem skiptir mestu máli heldur innihaldið

Gleðilegt sumar kæra Steingerður og takk fyrir skemmtileg skrif og heimsóknir í vetur.

Gúnna, 24.4.2008 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband