Kirtlaveiki

Það hefur áður komið fram hér að ég elska meinlegar prentvillur og þýðingarvillur. Fyrir skömmu rakst ég á í kommenti á blogginu eina slíka sem mörgum hefur reynst hált á. Nefnilega að skrifa kirtill þegar átt er við kyrtil. Það er jafnan Kristur hinn krossfesti sem verður fyrir þessu því ég veit um tvö tilfelli þar sem hann og kyrtill hans eru til umræðu en í stað klæðnaðar frelsarans fer ritari óvart að tala um innyfli hans. Í flennistórri fyrirsögn í Tímanum hér í eina tíð var verið að fjalla um deilur innan kirkjunnar og sagt að aur og óhróður slettist á kirtil Krists vegna þess að prestar og prelátar gætu ekki setið á sátts höfði. Hvaða innkirtill varð fyrir slettunum fylgdi ekki sögunni. Kommentið snerist hins vegar um það að Kristur hefði verið svo örlátur að ef hann hefði átt tvo kirtla hefði hann gefið annan. Varla er þá um annað en nýrun að ræða því fæstir geta lifað án brisisins, heiladingulsins, lifrarinnar og svo framvegis. Sjálf hef ég ekki farið varhluta af svona villum því á tímabili var ég gjörn á að sleppa ð í maður þegar ég skrifaði. Gulla prófarkarlesari á Fróða var fljót að taka eftir þessu og við komumst að því að þetta væri eitthvað freudískt því ef þú sleppir ð verður orðið maður að maur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég hef líka yndi af meinlegum villum (púki, hehe) og man t.d. eftir einni íþróttalýsingu sem var svona: Aðþrengdur skítur leikmaður í fang markvarðar. - Alveg satt.

Að svo ógleymdum vandræðalegum fyrirsögnum á borð við: Leoncie reið Markúsi Erni / Látnir þvo bíla / Skreið til Nígeríu.

Berglind Steinsdóttir, 27.3.2007 kl. 20:36

2 Smámynd: Svava S. Steinars

Jamm, kirtlamistökin eru alltaf skemmtileg, eins þegar fólk á barnalandi segir að börnin sín séu óskýrð.  Langar alltaf að skýra fyrir fólki hvernig það eignaðist börnin...

Svava S. Steinars, 28.3.2007 kl. 11:32

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Prentvillupúkarnir ásmt fólginu sem kann eki a skyfa getur skabað dásamlega bullublöndu, fulla af skrítnum og óskyljanlegum teingyngum.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 28.3.2007 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband