Nagandi óvissa

Ég sat hér í makindum við tölvuna þegar ég heyrði eitthvað bresta undir tönn hjá hundinum sem lá fram á palli. Það var líkt og köld hönd gripi um hjarta mitt, enda er ég minnug sterastríðsins sem geysaði hér í Neðstutröðinni ekki alls fyrir löngu. Ég stökk því á fætur en það gerði Freyja líka og smeygði sér undir rúm. Ég náði taki á því sem hún var með í kjaftinum og dró hana urrandi undan rúminu. Herfangið reyndist glossið hennar dóttur minnar sem nú er hauslaust en nothæft. Þetta jók ekki vinsældir Freyju hjá uppeldissystur sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 12:38

2 identicon

Auðvitað þarf Freyja að vera með gloss

Alma Lilja (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 17:30

3 Smámynd: Svava S. Steinars

Hahaha, ég man líka eftir tjalddýnu og innihaldi töskunnar minnar sem sami hundur hakkaði í sig.  Er meira nagdýr en kanínan

Svava S. Steinars, 23.4.2007 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband