Hrotið undir fyrirlestri

Ég brá mér á fyrirlestur í gær um aðferð í sálfræði sem kallast fókusing. Í lokin leiddi fyrirlesarinn okkur í gegnum slökunarferli þar sem við áttum að velta fyrir okkur hvernig tilfinningarnar sætu í líkamanum. Ég steinsofnaði og hrökk upp þegar ég var við það að byrja að hrjóta rétt um áður en fyrirlesarinn lauk slökuninni. Þegar hann síðan spurði hvort við hefðum fundið fyrir einhverju skammaðist ég mín ofan í skó og forðaðist að horfast í augu við hann. Það eina sem ég fann var blessað óminnið þegar hausinn byrjaði að dingla og ég að dotta.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha...þú fékkst allavega kríu fyrir þinn snúð

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.4.2007 kl. 12:22

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú hefur í öllu falli fundið slökunarsvörunina þína! Hvernig var fyrirlesturinn að öðru leyti?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 25.4.2007 kl. 13:12

3 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég get ekki betur séð en að þú hafir bara gert það sem til var ætlast. Bæði þú og fyrirlesarinn megið vera ánægð með ykkur, humm humm.

Berglind Steinsdóttir, 25.4.2007 kl. 17:18

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég get ekki betur séð en að þú hafir bara gert það sem til var ætlast. Bæði þú og fyrirlesarinn megið vera ánægð með ykkur, humm humm.

Berglind Steinsdóttir, 25.4.2007 kl. 17:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband