Grjótpálar tveir

Við Svava vorum að koma úr hressandi göngutúr um steinafjöruna í Hvalfirði. Við systur tíndum baggalúta, jaspísbrot, bergkristalla og fleira og fleira. Eftir örskamma stund vorum við orðnar rúmlega 100 kg. þyngri en venjulega og undarlega siginaxla af steinaburði. Samt gátum við ekki stillt okkur um að bæta við ef við sáum einhverja freistandi hlunka liggjandi í fjörunni. Til allrar hamingju voru veiðilendur rýrari hinum megin á nesinu og við sluppum því við að verða strandglópar þarna í fjörunni þegar við værum hættar að komast úr sporunum vegna grjótþyngsla. Ætli við hefðum þá ekki orðið að steini þarna og mosavaxnar fyrr en varði. Það hefði nefnilega ekki verið hægt að treysta því að við hefðum vit á að losa okkur við eitthvað af gersemunum í vösunum til að orka það að ganga upp að bílnum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ja hérna hér, hljómar spennandi. Þetta verð ég að prófa. Er algjör skúrkur þegar kemur að því að sanka að mér jafnvel sveppum úr Elliðarárdalnum í t.d. skreytingar. Þetta hljómaði það vel að ég er næstum komin í strigaskónaEin!

Heiða Þórðar, 29.4.2007 kl. 19:34

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.4.2007 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband