Páskahérinn og bollurnar

Ég er óforbetranlegur sælkeri og sykurfíkill. Hana, ég viðurkenni þetta bara sisvona. Undanfarnir dagar hafa nefnilega verið martröð. Í öllum búðum vella nú páskaegg úr pappakössum og blasa við í þar til gerðum eggjabökkum. Þetta er hræðilega eggjandi því í þeim sameinast tvær helstu ástríður mínar í lífinu, snjallyrði eða orðskviðir og súkkkulaði. Ég á verulega bágt þessa dagana og á von á að ummálið aukist umtalsvert fram að páskum ef páskahérinn miskunnar sig ekki yfir mig og forðar hluta af þessum litlu freistingum úr augsýn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Merkilegt hvað flest allt gott er annað hvort stimplað óhollt eða bannað.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 12.2.2008 kl. 09:54

2 Smámynd: Gúnna

Mikið er ég sammála þér hér. Mér væri reyndar sama um páskaeggin ef ekki væri fyrir málsháttinn. #1 frá Nóa finnst mér best mmmmm......... passlegur skammtur af sykri og fitu með góðu glasi af undanrennu.

Gúnna, 13.2.2008 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband