Frelsi í hugsun

Í morgun var ég að ræða um bókina Frjáls eftir Ayaan Hirsi Ali við starfsmann útgefandans og nefndi það við hann að ég væri alveg hissa á hversu litla athygli bókin hefði vakið hér á landi. Mér finnst nefnilega svo áhrifamikið og merkilegt að þessi kona sem alin er upp í islam, var mjög trúuð og barðist árum saman við að beygja sig undir ofurvald trúarbragðanna fullyrði að misrétti sé innbyggt í islam. Vestrænir spekingar hafa nefnilega borið á móti þessu árum saman og sagt að í Kóraninum sé ekkert slíkt að finna þvert á móti sé þar bara kærleikur. Nú þekki ég þetta ekki og ætla mér ekki að dæma um það en Ayaan bendir að í Kóraninum sé sannarlega að finna misrétti gegn konum og þar sé líka krafist slíkrar undirgefni gagnvart guði og trúarbrögðunum að gagnrýnin hugsun komist ekki að. Hún segir að á meðan svo sé verði engar framfarir í löndum sem játa þessa trú og lýðræði muni aldrei geta þrifist. Finnst ykkur þetta ekki merkilegt? Eins og ég tók fram áðan þá þekki ég þetta ekki en finnst þess virði að hlusta á sterka, afgerandi rödd þessarar hugrökku konu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er einmitt að lesa þessa bók núna. Ekki langt komin en mikið svakalega er hún áhrifarík.

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.6.2008 kl. 13:45

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þarf að skella mér á hana þessa. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.6.2008 kl. 14:11

3 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Þetta er merkilegt. Ég þarf eiginlega að lesa þessa bók. Ef svo virðist vera eins og hún segir frá, þá er það ógnvekjandi hugsun að ekki sé að vænta frelsis og lýðræðis í þeim löndum sem Islam er iðkuð og hvað þá jafnrétti kynjanna!

Sigurlaug B. Gröndal, 2.6.2008 kl. 21:53

4 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Misrétti er innbyggt inn í alla trú, líka kristna trú. Misréttið í Biblíunni er síst minna en í Kóraninum: "Því að maðurinn er höfuð konunnar, eins og Kristur er höfuð kirkjunnar"

Þrátt fyrir allra karlrembuna í Biblíunni hefur frelsi, lýðræði og jafnrétti kynjanna þróast áfram á Vesturlöndum.  Því er út í hött og í raun fordómar að álykta að hið sama geti ekki gert í þeim löndum þar sem Islam er ríkjandi. 

Svala Jónsdóttir, 7.6.2008 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband