Mikilvægi undirfata

Um daginn var ég að taka til í nærfataskúffunni minni. Nauðsynjaverk svona í byrjun nýs árs. Þá rifjaðist upp fyrir mér að þegar ég var barn fékk ég eitt sinn ráðleggingu sem hefur vafist mjög fyrir mér síðan, enda af heimspekilegum toga. Ég var að leika við nokkuð eldri stelpu sem bjó í sömu blokk og varð fyrir því að hella niður á peysuna mína kakómalti úr flösku. Við skutumst því heim til mín svo ég gæti skipt um föt og þegar ég fór úr sá hún að nærbolurinn minn var rifinn við handholið. Þá kvað hún: „Bolurinn þinn er rifinn. Maður á aldrei að vera í rifnum eða skítugum nærfötum maður veit aldrei hvað getur skeð.“ Ég sagði ekkert en velti þessu alvarlega fyrir mér. Ég bar nefnilega ómælda virðingu fyrir þessari stelpu fyrst og fremst vegna þess að hún hafði gífurlegt sjálfstraust og taldi sig alla jafna hafa rétt fyrir sér. Á þessum árum trúði ég nefnilega að menn hefðu ekki svona bólgið sjálfstraust nema innistæða væri fyrir því en síðan þá hefur reynslan kennt mér að yfirleitt er  hlutfallið milli sjálfsálits og hæfileika öfugt. Þegar ég hafði hugsað um orð hennar litla stund sagði ég: „Af hverju á maður að passa upp á nærfötin?“ „Nú ef þú lendir í slysi eða deyrð eða eitthvað þá viltu ekki vera í ógeðslegum nærfötum.“ „Varla er maður á nærfötunum þegar maður kemur á fund skaparans,“ stundi ég alveg græn og gáttuð. „Nei, en hugsaðu um læknana asninn þinn. Ef þú lendir í slysi eða svoleiðis heldur það sé ekki nóg fyrir þá að koma að slíkum hörmungaratburði þótt þeir þurfi svo ekki að horfa upp á fólk í viðbjóðslegum nærfötum.“ Við þessum rökum átti ég auðvitað ekkert andsvar því að sjálfsögðu er ekki á áfall læknanna bætandi þegar þeir þurfa að sinna dauðsföllum. Ég er svo ekki frá því að fleira af nærfötunum í skúffunni hafi ratað í ruslapokann eftir þessa upprifjun en endilega var ætlunin þegar skúffan var opnuð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já - þess vegna er ég alltaf í samstæðum nærfötum ef ég fer af bæ

Hrönn Sigurðardóttir, 7.1.2009 kl. 11:17

2 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Get verið í hræðilegri skyrtu og buxum, jafnvel farið út í búð í hræðilegum gömlum náttfötum, enn nærfötin eru tandur og heil, það er þetta með læknirinn.

Sigurveig Eysteins, 8.1.2009 kl. 05:55

3 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Þetta sagði amma alltaf. Þetta er eitthver gömul siðferðisregla frá hennar tímum. Þetta þótti mikið mál og þær gömlu krossuðu sig í bak og fyrir er eitthvert barnabarnanna var í slitnum eða of litlum nærfötum. Ég held að læknunum sé bara nokk sama en álit annarra skipti miklu máli þá. Það var fyrir öllu. Það var ekki óalgengt að heyra: "hvað heldurðu að nágrannarnir segi", "hvað heldurðu hvað hinn eða þessi segi ef.........". Sem betur fer heyrist þetta mun sjaldnar en þá daga en samt við líði enn.

Sigurlaug B. Gröndal, 9.1.2009 kl. 12:46

4 Smámynd: Heidi Strand

Þetta hef ég líka heyrt, en frá gömlum konum.
Nú er kannski hugsað frekar um önnur ævintýri varðandi nærföt.

Heidi Strand, 11.1.2009 kl. 15:32

5 identicon

aha, kannast við þetta, reyni að vera nokkuð vel til fata þarna innst :)

alva (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 22:03

6 identicon

...fara...

alva (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 22:03

7 identicon

Ég er skíthrædd við það að fara útúr húsi í ljótum nærfötum..
sérstaklega þar sem ég þekki alla læknana sem mundu taka á móti mér ef ég mundi lenda í slysi :S
það er meira að segja ein sem vinnur með mér sem fær martraðir sem eru á þann veg að hún kemur á slysó og hún er ekki búin að raka fæturnar :D  hahhaha

Herdís Hrafnsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 17:38

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Takk fyrir skemmtileg skrif að vanda.

Uppeldið situr í manni og endist ævina með þetta, að vera alltaf fínust innst :)

Marta B Helgadóttir, 13.1.2009 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband