Hrifnæmi

Ég hef alltaf verið viðkvæm, hrifnæm og fljót að sveiflast milli hláturs og gráturs. Það verður að segjast eins og er að oftast nær hef ég fremur talið þetta löst en kost. Mér var einnig kennt frá unga aldri að yfirvegun væri það sem skilaði okkur mannfólkinu mestu og þolinmæðin dyggð. Sá sem sveiflast á orskotstund frá gleði yfir í dýpstu sorg eins og ég veit hins vegar að ekkert er verra en að bíða og bestu útrásina færðu þegar og ef þú bregst við tilfinningum þínum strax.

Mamma las fyrir okkur á kvöldin þegar ég var barn og ég var alltaf fyrst til að skæla ef illa var komið fyrir söguhetjunni og eins var ég fljót að brosa þegar lánið lék við hana að nýju. Við systurnar fórum líka í Tjarnarbíó með mömmu að sjá Síðasta bæinn í dalnum. Þegar tröllið í myndinni velti þeim systkinum ofan í kistu sem flaug síðan með þau um geyminn var mér allri lokið. „Nú, getur ekkert bjargað þeim,"skrækti ég óhuggandi og fór síðan að hágráta. Allt fór auðvitað vel að lokum og ég tók gleði mína um það leyti sem endirinn nálgaðist og tröllið fékk makleg málagjöld.

Fimmtán ára gömul sá ég Fantasíu Disney's og grét þegar flóðhestarnir stigu lipran ballett undir tónum Blómavalsins eftir Tjsakovskí. Mér fannst tónlistin svo óendanlega falleg og eitthvað svo dásamlegt að sjá þessi stóru þungu dýr tipla um og dansa meira af vilja en mætti. Mér fannst það segja eitthvað stórkostlegt um sigur andans yfir efninu. Að sjálfsögðu var það hin versta skömm að láta það sjást að manni hefði vöknað um augu og það undir teiknimynd svo ég gerði mitt besta til að fela andlitið í úlpuhettunni á leiðinni út. Og þetta var í fyrsta en ekki síðasta skipti sem ég laumaðist þannig út úr bíóhúsum. Gumma fannst nóg um þegar hann gekk með okkur Andra, bæði útgrátin, út úr Laugarásbíó eftir að fjölskyldan fór og sá ET.

Eftir því sem ég eldist hef ég reynt að hemja þessa hlið skapgerðar minnar en af og til berast bækur inn á borð hjá mér eða bíómyndir sem opna allar flóðgáttir. Þar á meðal má nefna A Million Little Pieces sem lesin var í bókaklúbbi Opruh Winfrey og fékk reyndar mikla gagnrýni fyrir að segja ekki sannleikann allan. Barn að eilífu er önnur bók sem hafði djúp áhrif á mig sömuleiðis Myndin af pabba. Ég losaði mig við þónokkra lítra af saltvatni við lestur þessara bóka og sat lengi eftir með tilfinningar sem erfitt var að fá útrás fyrir. Það er því sama hvernig ég reyni að hemja viðkvæmnina á sínum bás hún brýst alltaf út að lokum. Já, viðkvæmnin er vandkind.

Nýlega komst ég að þeirri niðurstöðu að kannski væri bara best að lofa viðkvæmniskindinni að hlaupa óbeislaðri og óhaminni um allar jarðir. Þetta er einfaldlega hluti af mér og hví ekki að bera höfuðið hátt og vera hreykin af því að það er minnsta kosti hægt að hræra mann til meðaumkunar. Hér eftir hef ég ákveðið að bera höfuðið stolt og reyna ekkert að leyna merkjum um tárin í hvert skipti sem þetta meyra nær yfirhöndinni innra með mér. Hinn kosturinn er harkan og tilfinningaleysið og þannig vil ég ekki vera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Vá þú ert bara verulega heilbrigð og ert með innbyggt heilbrigðiseftirlit sem passar uppá að þú sitjir ekki eftir sem eitt spennubúnt af óupplifuðum eða bældum tilfinningum. Ef það er of erfitt fyrir þig að vera svona mikil tilfinningavera heima á íslandi skaltu bara koma til bretlands. Her þykir ekkert tiltökumál að konur gráti allan tímann alltaf. Þær láta meira að segja mig líta út eins og tilfinningalega heftan tréhest!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.5.2007 kl. 19:14

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Úff er komin á kaf í nostalgíuna.  Síðasti bærinn í dalnum - í Tjarnarbíó OMG!!! Ég finn lyktina af bíóinu, poppkornsbragðið í munninum og spennuna og óttann þar til að mér varð ljóst að allt færi vel.  Sá hana oftar en einu sinni.  Er sjálf einn tilfinningavöndull og bregst við út frá tilfinningum alltaf.  Hef lært að lifa með því og sættast við það.  Hallast helst að því að það sé mun betra til árangurs heldur en tréhestasyndromið.

Smútsj

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2007 kl. 22:58

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Veistu; tilfinningalegt stabílitet er stórlega ofmetið. Vertu glöð yfir því að þú ert ekki dofinn drumbur á sólbakaðri strönd í einskinsmannslandi. Þú ert með - og hrífst með. Og hananú!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.5.2007 kl. 00:01

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Djöfull eruð þið gamlar ... hélt að frú Steinka væri ári yngri en ég. Sá ekki Síðasta bæinn í dalnum og hélt að myndin sú væri síðan í fornöld. Getur verið að búsetan á Akranesi, sem var í meiri fjarlægð við höfuðborgina en nú, hafi haft eitthvað um þetta að segja?

Það er sko gott að geta grátið yfir sorglegum myndum, stend með þér þar, til hvers eru annars lök? Annars held ég að breskar konur skæli yfir öllu, fara yfir öll mörk, eins og þær amerísku! Sjá þætti Opruh Winfrey, The Office og fréttir BBC, nei, ég er farin að bulla ... fer nú beint að sofa. Sendi kæra kveðju í Kópavoginn!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.5.2007 kl. 00:32

5 identicon

úff , ég var svo hrædd við tröllin í Síðasta bænum í dalnum , var alveg miður mín. En , ég græt stundum jafnvel yfir fréttunum , er frekar viðkvæm hvað þetta varðar og skammast mín ekkert fyrir það . Og ef dýr og börn eiga í hlut ,þá háskæli ég .

Þöllin (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband