Í mínum villtustu draumum

Ef draumar endurspegla undirmeðvitund manns er ég ekki alveg viss um að mig langi til að kynnast þeirri persónu sem leynist undir yfirborðinu hjá mér. Draumar mínir eru nefnilega með eindæmum ruglaðir oft og tíðum. Til að mynda dreymdi mig í nótt að ég væri stödd á dansleik og maður að nafni Lalli elti mig út um allt til að reyna að kyssa mig. Ég kærði mig ekkert um kossa hans, enda var hann yfirmátakauðalegur langur og mjór með stórt nef. Hann minnti einna helst á lýsinguna á Guðmundi, syni Bárðar á Búrfelli úr Pilt og stúlku sem við öll munum sem lásum Lesbók nr. eitthvað í barnaskóla. Ég setti þó ekki útlit mannsins mest fyrir mig heldur fannst mér í draumnum það lýta hann einna mest að hann héti Lalli. Já og í ofanálag hefur bergmálað í hausnum á mér í allan dag ljóðlína eftir Steinunni Sigurðardóttur: „Sál mín var dvergur á dansleik í gær.“ Þetta getur ekki verið eðlilegt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Þú ert nú alveg hreint mögnuð, Steinka mín!

Sigurlaug B. Gröndal, 16.8.2007 kl. 15:42

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 20:37

3 identicon

Guðmundur sonur Bárðar... sem vekur óhug... Ja nú veit ég ekki

Andri (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 21:37

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég er <lalli

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 17.8.2007 kl. 00:56

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta er alveg guðdómlegt....! Var þetta í lit og fannstu fúlan fnyk af kauða? Ég held að manneskjan sem er að upplifa draumana þína sé alls ekki svo galin, t.d. vill hún ekkert hafa að gera með kossaflens af hendi (munni) Lalla Bárðarsonar, sem er kauðalegur, langur og mjöpr með stórt nef. Afskaplega heilbrigt. Og tengingin við ljóðlínu Steinunnar, - þetta er rakin snilld.  Upgrade your email with 1000's of emoticon icons
 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.8.2007 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband