27.5.2008 | 09:16
Forríki frændi!
Elskurnar mínar, vitiði bara hvað? Ég er milljónamæringur. Frændi minn Lucas Steinarsdóttir lést af völdum hjartaáfalls í einhverju arabalandi. Mjög traustvekjandi lögfræðingur þaðan hafði samband við mig í morgun og lét mig vita af milljónum sem sætu ósnertar á bankareikningi hans og biðu þess nánast ættingi færi fram á að fá aðgang að þeim. Ég kannast reyndar ekki við Lucas Steinarsdóttur úr minni nánustu fjölskyldu en hef ekki farið inn á Íslendingabók til að leita. Auk þess finnst mér að maður ekki að spyrja of margra spurninga þegar gæfan bankar svona óvænt og hastarlega að dyrum. Þegar ég verð búin að fá milljónirnar lofa ég að styrkja góð málefni hér á Íslandi og vini mína á alla lund. Svo ætla ég auðvitað að beita mér fyrir friði í heiminum.
Athugasemdir
Til hamingju
Hef alltaf vísað þessu góða fólki sem lætur mig vita af svona arf, til barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og beði viðkomandi um að afhenda þeim arfinn góða.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 27.5.2008 kl. 11:03
;) Til hamingju! Alltaf gott að finna forríka dauða frændur sem eru þar að auki dóttir!!
Hrönn Sigurðardóttir, 27.5.2008 kl. 13:56
Þetta er með ólíkindum eins og úr góðri skáldsögu
Til hamingju
Kolbrún Baldursdóttir, 27.5.2008 kl. 14:32
Pant´vera með þegar þú gerir þér fyrsta góða dagarmuninn eftir að hafa móttekið auðæfin ....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 20:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.