16.5.2007 | 16:34
Hrifnæmi
Mamma las fyrir okkur á kvöldin þegar ég var barn og ég var alltaf fyrst til að skæla ef illa var komið fyrir söguhetjunni og eins var ég fljót að brosa þegar lánið lék við hana að nýju. Við systurnar fórum líka í Tjarnarbíó með mömmu að sjá Síðasta bæinn í dalnum. Þegar tröllið í myndinni velti þeim systkinum ofan í kistu sem flaug síðan með þau um geyminn var mér allri lokið. Nú, getur ekkert bjargað þeim,"skrækti ég óhuggandi og fór síðan að hágráta. Allt fór auðvitað vel að lokum og ég tók gleði mína um það leyti sem endirinn nálgaðist og tröllið fékk makleg málagjöld.
Fimmtán ára gömul sá ég Fantasíu Disney's og grét þegar flóðhestarnir stigu lipran ballett undir tónum Blómavalsins eftir Tjsakovskí. Mér fannst tónlistin svo óendanlega falleg og eitthvað svo dásamlegt að sjá þessi stóru þungu dýr tipla um og dansa meira af vilja en mætti. Mér fannst það segja eitthvað stórkostlegt um sigur andans yfir efninu. Að sjálfsögðu var það hin versta skömm að láta það sjást að manni hefði vöknað um augu og það undir teiknimynd svo ég gerði mitt besta til að fela andlitið í úlpuhettunni á leiðinni út. Og þetta var í fyrsta en ekki síðasta skipti sem ég laumaðist þannig út úr bíóhúsum. Gumma fannst nóg um þegar hann gekk með okkur Andra, bæði útgrátin, út úr Laugarásbíó eftir að fjölskyldan fór og sá ET.
Eftir því sem ég eldist hef ég reynt að hemja þessa hlið skapgerðar minnar en af og til berast bækur inn á borð hjá mér eða bíómyndir sem opna allar flóðgáttir. Þar á meðal má nefna A Million Little Pieces sem lesin var í bókaklúbbi Opruh Winfrey og fékk reyndar mikla gagnrýni fyrir að segja ekki sannleikann allan. Barn að eilífu er önnur bók sem hafði djúp áhrif á mig sömuleiðis Myndin af pabba. Ég losaði mig við þónokkra lítra af saltvatni við lestur þessara bóka og sat lengi eftir með tilfinningar sem erfitt var að fá útrás fyrir. Það er því sama hvernig ég reyni að hemja viðkvæmnina á sínum bás hún brýst alltaf út að lokum. Já, viðkvæmnin er vandkind.
Nýlega komst ég að þeirri niðurstöðu að kannski væri bara best að lofa viðkvæmniskindinni að hlaupa óbeislaðri og óhaminni um allar jarðir. Þetta er einfaldlega hluti af mér og hví ekki að bera höfuðið hátt og vera hreykin af því að það er minnsta kosti hægt að hræra mann til meðaumkunar. Hér eftir hef ég ákveðið að bera höfuðið stolt og reyna ekkert að leyna merkjum um tárin í hvert skipti sem þetta meyra nær yfirhöndinni innra með mér. Hinn kosturinn er harkan og tilfinningaleysið og þannig vil ég ekki vera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.5.2007 | 16:28
Bolabítur
Og fyrst maður er byrjaður að birta vísur þá er hér ein inspíreruð.
Finnst þér ekki Benni bolabítur
vera berlegur bokkaskítur?
Hann er brúnn
eins og bjarnarhúnn,
búttaður, boginn og hrýtur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.5.2007 | 16:23
Kristnifræði fyrir fullorðna
Ég rakst á þessa vísu í skjölum hjá mér áðan en hana lærði ég af ömmu vinkonu minnar Áslaugu Thorlacius. Ég kann vel við þessa kristnifræði.
Þá sagði Jósep: Þetta er svindl hjá þér.
Þú hefur haldið framhjá mér."
Uss!" Sagði Maja, ekki þetta suð.
Engan hef ég haldið við nema drottinn minn guð."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)