4.1.2008 | 19:14
Efnafræði fyrir byrjendur
Eitthvað brást mér nú bogalistin í annálnum mínum því sonur minn sá ástæðu til að benda mér á að hann er í MS-námi en ekki MA-námi. Efnið sem hann byrjaði á að rannsaka er aðeins lítill hluti af rannsókninni og eiginlega orðið aukaatriði í henni núorðið. Mér tókst líka að rugla gersamlega því sem tengdadóttirin er að gera, enda hef ég aldrei verið neinn snillingur í efnafræði. Nú þori ég ekki einu sinni að reyna að segja nokkurn hlut um starf þeirra. Látum nægja að segja að bæði stundi þau rannsóknir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)