Hvað segir bókhillan þín um þig?

91jP25OQNnL._AC_SL1500_Á flestum heimilum eru bókasöfn, misstór og fjölbreytt, en engu að síður kjósa flestir að hafa í kringum sig bækur. Þetta eru uppflettirit, uppáhaldsskáldsögur, fallega innbundin ritsöfn, bækur tengdar áhugamálum og ótal margt fleira. En hvernig fólk kýs að raða í bókahilluna er mjög misjafnt og segir margt um viðkomandi.

Sumir raða eftir lit. Allar rauðar bækur saman, þær svörtu á öðrum stað og þannig koll af koll. Ef marka má netið er það skapandi fólk með gott auga fyrir formi og litum. Það hefur einnig gaman af að prófa sig áfram og skoða hlutina frá öllum hliðum.

Þeir sem raða eftir tegundum það er leyfa ljóðabókunum að vera saman, ævisögunum við hlið þeirra og koma svo uppflettiritunum í sérhillu og þar fram eftir götum er fólk með góða rökhugsun, skipulagt og nokkuð formfast.

Þriðja týpan raðar eftir höfundum. Hver og einn fær sitt pláss og stöku höfundarnir raðast saman. Þetta er félagslynt fólk með góða tilfinningagreind. Helst vill það hafa félagsskap í kringum sig og ræða efni bóka sinna við aðra.

www.ubuyFjórði hópurinn kýs að raða bókum eftir stærð. Þetta er íhaldssamt fólk sem heldur fast í gamlar venjur og siði. Það er almennt ekki tilbúið til að breyta miklu og vill helst hafa hvern dag í föstum skorðum og sína rútínu á hreinu.

Að lokum eru það svo þeir sme raða alla vega. Bækurnar liggja ýmist láréttar eða látnar standa upp á rönd. Hér eru uppreisnarseggir á ferð. Þeir láta ekki segja sér fyrir verkum né hvernig hafa á hlutina. Þeir njóta þess að breyta og upplifa ævintýri.


Bloggfærslur 10. mars 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband