21.10.2007 | 20:26
Skýring á skrýtilegheitum
Síðan að ég kom úr laseraðgerðinni hefur sjáaldrið á hægra auga verið mun stærra en á því vinstra. Læknirinn minn var nokkuð hissa á þessu en sagði að best væri að bíða og sjá til hvort þetta lagaðist ekki. Svava systir var hins vegar fljót að finna skýringu á muninum. Hún telur nefnilega að þarna sé komin skýring á skrýtilegheitum mínum. Ég sé sem sagt í varanlegri kókaínvímu hægra megin en bláedrú og straight á vinstri hlið. Þetta er kenning.
Athugasemdir
Marta B Helgadóttir, 21.10.2007 kl. 21:07
Góð - ! Spennandi að vita hvernig það er að horfa út um annað í kókaínvímu
Linda Lea Bogadóttir, 23.10.2007 kl. 23:45
Hvort er nú skemmtilegra hægra eða vinstra megin.....?
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.10.2007 kl. 22:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.