6.11.2007 | 10:10
Skjótt skipast veður í lofti
Í gærkvöldi gengum við Freyja hringinn í kringum Rauðavatn í stilltu, svölu veðri og leið óskaplega vel. Þetta var í ljósaskiptunum og birtan einstaklega falleg. Yfir okkur hvelfdist stjörnubjartur himinn og máninn hékk hálfur með skært gervitungl sér við hlið. Tíkin trylltist um leið og við komum inn í skóginn, enda eru kanínur þar. (Ég skil ekki þá fortakslausu grimmd og miskunnarleysi að henda gæludýrum barna sinna út í íslenskar aðstæður þegar börnin eru búin að fá nóg. Þessir vesalingar komast reyndar af hér en afföllin eru gríðarleg á ári hverju.). Eftir hressandi og fínan spássitúr komum við til Helenar systur þar sem Freyja hakkaði í sig hálfan poka af harðfiski sem frænka hennar var svo vitlaus að skilja eftir á sófaborðinu. Mér reyndar sýndist Helen ekkert hafa á móti því að moka góðgætinu upp í tíkina þar til ég sagði stopp. Morgunganga okkar byrjaði hins vegar hvorki né endaði eins vel. Við fórum seinna af stað en venjulega og leiðindarigning barði á okkur allan tímann sem við gengum. Ég slapp þó inn áður en himnarnir opnuðust og helltu öllu því vatni sem þar fara að finna í fötum yfir höfuðborgina. Þegar það gerðist var ég á leið í vinnuna og rúðuþurrkurnar höfðu ekki undan að reyna að skafa mér smáútsýni. Þannig að skjótt skipast veður í lofti hér á landinu kalda þetta haustið.
Athugasemdir
já, ekki sniðugt þetta með kanínurnar og gæludýrin..en einu sinni í sveitinni minni gömlu, áttum við tvær kanínur, Hans og Grétu, þau áttu sko BÖRN og buru, sem óvart voru komin um allar sveitir..og í allar hlöðurnar í sveitinni...það þurfti víst að fara í veiðitúr til að fækka þessum greyjum, þessar kanínur eru ótrúlegar að bjarga sér...það er sko mjög erfitt að halda lífinu í kanínuungum í búri en við þessar aðstæður fjölga þær sér gríðarlega, maður skilur ekki þessa náttúru stundum..
alva (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 23:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.