Seinheppni

Ég er ein af þeim sem alltaf velur vitlausa röð í stórmarkaðnum. Að verslunarferð lokinni skanna ég raðirnar við kassana og vel vandlega. Sú röð sem er styst og þar sem fólk er með minnst af vörum í körfunni verður ævinlega fyrir valinu. Það bregst hins vegar sjaldan að konan á undan mér er ekki með eitt einasta hæti í körfunni sinni sem er skannanlegt þannig að afgreiðslustúlkan hleypur milli tíu og fimmtán ferðir til að leita að verðinu. Í þeim tilfellum sem innrauði geislinn nær að lesa vöruverðið skammlaust er alveg öruggt að viðskiptavinurinn á undan mér taki upp á að kvarta og heimta að allar vörurnar séu skannaðar aftur til að tryggja að hann verði ekki snuðaður og gerist ekkert þessu líkt er ég svo stálheppin að lenda á hreyfihamlaðri afgreiðslustúlku með athyglisbrest sem vinnur á snigilhraða. Mér skilst að ég sé ekki ein um að verða mosavaxin í röðinni í stórmarknum en ég veit ekki hversu algengt það er að vera svo óheppin með almenningsklósett að ótti minn við þau stappar nærri fóbíu. Ég held í mér klukkutímunum saman frekar en að fara á klósettið á opinberum stað en þá sjaldan að ég neyðist til gerist alltaf eitthvað ömurlegt. Allir vita hvernig það er að sitja á páfastólnum og hafa nýlokið við að losa sig við það sem þurfti út og uppgötva þá að engan klósettpappír er að finna í þínum bás. Ég hef oft lent því og líka að klósettið reynist stíflað. Það er bókstaflega ekki hægt að lýsa þeirri örvæntingu sem grípur mann þegar nýbúið er að sturta niður á almenningsklósetti og í stað þess að fara niður svífur gromsið upp á móti þér. Eina leiðin sem þá er fær er að hlaupa eins og fætur toga eins langt og úthaldið endist. Það er líka pínlegt að tylla sér á klósett sem þjáist af sírennsli og uppgötva þegar upp er staðið að ekki er nægilegt vatn í vatnskassanum til skola burtu því sem þú skildir eftir. En alversta uppákoma sem ég hef lent í á almenningsklósetti átti sér stað í dag. Ég var búin að halda í mér dágóða stund og því var brýnt að setjast sem fyrst. Ég reif niðrum mig og hlammaði mér á setgagnið og viti menn það rann af stað og afturendinn á mér með. Það vildi mér til happs að klefinn var mjór og stað þess að skella í gólfið skullu fæturnir á mér utan í klefavegginn, innbyggjara næsta klefa til mikillar skelfingar. (Hann stóð snarlega upp, skellti niður og fór.) Ég mjakaði hins vegar setunni til baka og þorði ekki að hreyfa einn einasta vöðva meðan ég lauk við losun þvagblöðrunnar. Ég stóð líka ofurvarlega á fætur og sturtaði niður og forðaðist gersamlega að líta til hliðar til að athuga hvort eitthvað hefði ekki farið rétta boðleið til sjávar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannast líka við þetta eins og þú veist

Sigurveig Eysteins (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 01:24

2 Smámynd: Svava S. Steinars

Ég hef líka lent í svona hremmingum - bæði í stórmarkaðsröðunum og á salernum.  Versta tilvikið í stórmarkaði var þegar kassinn sem ég beið við hreinlega bræddi úr sér og var honum því lokað fyrir fullt og allt.  Ekki þarf að taka fram að hinar raðirnar voru auðvitað um 15 km langar og ég var næst í röð á þennan kassa.  Toppurinn í salernismálunum var svo þegar setan sem ég tyllti mér á í Bíóhöllinni reyndist vera laus og ég húrraði niður á gólf með tilheyrandi látum.  Hausinn á mér lenti við hliðina á klósettburstanum.  Hef farið í bíó með þvaglegg síðan.

Svava S. Steinars, 8.5.2007 kl. 14:02

3 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Almáttugur minn, það liggur við að ég öfundi ykkur - ekki státa ég af svona fyndnum svaðilförum. Ég veðja alltaf á rétta röð, les DV ef ég skyldi tefjast um mínútu og er svo með samkvæmisblöðru. Ég man einu sinni eftir að hafa gyrt pils ofan í sokkabuxur og það var í vernduðu vinnuumhverfi.

Þetta kallar maður mismunun.

Berglind Steinsdóttir, 8.5.2007 kl. 16:58

4 Smámynd: Heidi Strand

Það er gott að heyra um fleiri með sömu vandamál. Mér finnst ógeðslegt að koma á flest almenningssalerni, sérstaklega þegar sú á undan hefur haldið hún væri með typpi og er búin að spræna út um allt.
Fyrsta skipti sem ég fór á gólfbakkasalerni í Frakkland hamaðist ég við að halda jafnvægi og fannst ógeðslegt að horfa ofan í gatið í gólfinu en gerði mér enga grein fyrir að ég stóð öfugt, hinn endinn átti að góna ofan í það

Heidi Strand, 8.5.2007 kl. 17:36

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Dásamlegt - eftir á!

Ég er enn ein svona stórmarkaðsævintýramanneskja. Ég gæti skrifað bók um svaðilfarir mínum í dívers búðum, stórmörkuðum og sjoppum út um allar koppagrundir á jarðkúlunni...

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.5.2007 kl. 21:12

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko þessi brilljant pistill um örlög og ævintýri sögukonu í stórmörkuðum, fóru allt í einu aftast í röðina þegar ég las um klósettferðirnar.  Þetta á að vera bannað öllum eldri en 35.  VIÐBJÓÐUR!  Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.5.2007 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband