Svipur risessunnar

Um daginn heyrði ég á tal tveggja kvenna í verslun hér í bæ. Þær voru að ræða heimsókn risessunnar og önnur þeirra sagði: „Hún minnir mig á einhvern en ég get ekki fyrir mitt litla líf gruflað upp hver það er.“ Hún hafði varla lokið setningunni þegar því laust niður í mig að risessan minnir óneitanlega á Björk frá ákveðnum sjónarhóli að minnsta kosti. Þær hafa báðar þetta dulúðuga austræna útlit. Annars var reglulega gaman að heimsókn risessunnar og föður hennar hingað og þau lífguðu upp á borgina meðan þau stöldruðu við. Nafnið á fyrirbærinu virðist ekki hafa verið alveg skýrt hjá sumum því ég heyrði fréttamann á Stöð 2 kalla hana rísessuna í fyrstu frétt sem hann flutti af komu hennar. Kvöldið eftir hafði viðkomandi svo fundið rétta taktin og nafnið á hinni stórvöxnu dömu rétt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Tók einmitt eftir þessu með RÍSessuna ... Annað. Ég var að fá h-blaðið og er ekkert smáhrifin. Mjög flott blað hjá þér, stelpa!!! Ég er alltaf sama trukkalessan, hafði jafngaman af því að lesa karlahluta blaðsins og þann kvenlega. Til hamingju með gott blað, snillingurinn minn!

Guðríður Haraldsdóttir, 14.5.2007 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband