24.8.2007 | 11:21
Haustið er komið
Haustið er komið. Á því er engin vafi lengur. Í loftinu var einhver svalur tærleiki í morgun sem boðar komu haustsins en skýrari vísbending en umferðin er sjálfsagt vandfundin. Á leið í vinnuna í morgun var þyngri umferð en verið hefur í allt sumar. Hvert sem augað eygði mátti sjá bíla mjakast áfram og helstu umferðaræðar í Kópavogi voru stíflaðar eins og kransæðar rétt fyrir hjartaáfall. Ég var svo heppin að aka í öfuga átt við meginstrauminn og komst því nokkuð liðlega á leiðarenda. Gatnaframkvæmdir hér í bæ (Kópavogi) eru þó síst til þess fallnar að greiða mönnum leiðina nú. Dalvegurinn lokaður og hjáleið þar um planið hjá Bónus sem þegar er nokkuð upptekið vegna byggingaframkvæmda og Nýbýlavegurinn undirlagður. Kópavogur fer brátt að standa undir nafni aftur sem það sveitarfélag landsins sem auðveldast er að villast í.
Athugasemdir
Þetta er eina ástæðan fyrir búsetu fólks í Kópavogi - þetta eru allt Reykvíkingar sem rötuðu ekki heim
Svava S. Steinars, 24.8.2007 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.