11.1.2008 | 12:40
Andað djúpt
Við Svava fórum í gönguferð með Freyju upp að Rauðavatni í stilltu, björtu veðri. Loftið var svo hreint og svalt að það bókstaflega fyllti mann orku. Ég var hálfþreytt og drusluleg þegar við lögðum af stað en tvíelfdist við gönguna. Eva mín varð tvítug í gær og hélt veislu hér í húsinu. Síðustu krakkarnir fóru um tvöleytið og þá fór ég að tína saman bjórdósir og glös og viðra bjórlyktina úr húsinu. Ég var líka að ráða krossgátu Moggans og þegar allt lagðist saman náði ég ekki að sofna fyrr en rúmlega þrjú. Ég var því svolítið rykuð í morgun þegar ég vaknaði klukkan hálfellefu. Já, það tekur á að eiga tvítuga dóttur og kannski hafa áfengisgufurnar í húsinu svifið á mig.
Athugasemdir
Til hamingju með dótturina í gær
Það er alltaf hressandi að fara í góðan göngutúr. Alveg sama hvað maður nennir ekki af stað, alltaf skal maður koma góður heim - allavega á kona skilið að leggja sig eftir góða göngu
Hrönn Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 17:29
Til hamingju með stelpuna þína
Hugarfluga, 13.1.2008 kl. 18:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.