Á flótta undan hugtökum

Ég las það áðan á visir.is að móðir stúlku sem varð það á að slasa kennarann sinn segði að dóttir sín hefði verið á flótta undan einelti þegar slysið varð. Ég skil ekki alveg hvernig fólk getur lagt á flótta undan hugtökum eins og einelti. Ég myndi sennilega hlaupa frá krökkum sem legðu mig í einelti en hvernig eineltinu geta vaxið fætur sem færir eru um að elta einhvern uppi eða reka hann á flótta með öðrum útlimum er mér óskiljanlegt. Getið þið lagt á flótta undan hugtökum?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei - hef ekki einu sinni reynt það

En það gæti verið spennandi verkefni....................... 

Hrönn Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 10:07

2 Smámynd: Hugarfluga

Spes ... hahaha. 

Hugarfluga, 4.3.2008 kl. 12:09

3 identicon

Gæti maður ekki hætt að flýja hlutina með því að flýja Flóttann.... hvernig var þessi tilraun móðir sæl

Eva Halldóra (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 16:05

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Sammála Hrönn. Það gæti sannarlega verið spennandi. Ekki slæm Evan mín.

Steingerður Steinarsdóttir, 4.3.2008 kl. 16:07

5 Smámynd: Heidi Strand

Jeg tenkte ikke noe over dette før nå og jeg har da lært litt mere islandsk. Takk for dette.

Heidi Strand, 4.3.2008 kl. 20:35

6 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Makalaust ... en gaman að prófa það...
Hlauptu drengur hlauptu

Linda Lea Bogadóttir, 4.3.2008 kl. 23:39

7 Smámynd: Svava S. Steinars

Hér er ekki verið að flýja hugtak heldur athafnir annarra.  Einelti er heiti yfir athafnir annarra sem leiða til óþæginda og vanlíðunar fyrir fórnarlambið og er lýst með að segja að viðkomandi sé lagður í einelti.  Í gögnum og rannsóknum varðandi einelti á vinnustöðum og skólum er talað um að fórnarlömb flýji einelti, hafi lagt á flótta/flutt vegna eineltis starfsmanna osfrv.  Hér barn að flýja undan einelti bekkjarfélaganna, einelti er hér notað yfir athafnir þeirra.  Ég sé ekkert skrítið við þetta, miðað við þá notkun orða sem hafa verið um þessar athafnir og hugtak í vinnu minni sem trúnaðarmaður.

Svava S. Steinars, 5.3.2008 kl. 13:23

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Frábært blogg

Marta B Helgadóttir, 5.3.2008 kl. 21:37

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Frábært blogg...tek undir með Mörtu Smörtu.

Heiða Þórðar, 5.3.2008 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband