Loðdýr og hárlitlir menn

Hér hefur margoft komið fram að ég á þrjú loðdýr sem ég elska umfram margt annað. Síðan á ég tvo loðna pelsa sem ég kann afskaplega vel við en að sjálfsögðu heilla maðurinn minn og börnin mín mig umfram allt annað en stundum verður þó vart afbrýðisemi milli þessara hópa. Til að mynda get ég nefnt að einu sinni vorum við með tvo fressketti sem báðir höfðu verið geltir. Maðurinn minn kvartaði mikið undan því að ég reyndist köttunum mun betri en honum. Ég svaraði „Kettirnir eru kafloðnir og steingeltir ef þú ert tilbúinn að gangast undir sama skal ég koma eins fram við þig.“ Eftir þetta heyrðist ekki minnst á það að ég væri köttunum best þótt ég ynni manni mínum mest. Eftir að við fengum hundinn hefur komið í ljós að „there is something between a man and his dog“. Gummi bannaði mér nefnilega lengi að taka hund á þeim forsendum að ég myndi láta alltof mikið eftir honum. Eftir að Freyja kom á heimilið sáu allir að þótt ég væri eftirlát við tíkina og mjög góð við hana var það ekkert í samanburði við Guðmund sem lætur gersamlega stjórnast af tíkinni. Börnin mín kvarta stundum undan þessu, einkum Eva, en þeim er sagt að hundurinn sé eins og lítill óviti sem þau þurfi að taka tillit til. Misjafnt er hvernig þau taka því en sterastríðið þegar tíkin stal sterakreminu hennar Evu hefur leitt í ljós að aldrei verður fyllilega hægt að sætta alla. En ég verð að viðurkenna ef einhver horfir á mig saklausum brúnum augum eins og tíkin eða sýnir mér blíðu með að nudda hausnum upp við mig eins og kettirnir þá er ég fallin og ekki ábyrg gerða minna eftir það.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Arrrg! frábær pistill! Hef aðeins kynnst þér gegnum skrif þín, í gegnum árin og finnst þú í einu orði yndisleg manneskja.

Heiða Þórðar, 13.5.2007 kl. 12:00

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dásamlegur pistill.  Smútsj kæra bloggvinkona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.5.2007 kl. 14:45

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hahahahaha!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.5.2007 kl. 23:43

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

alltaf svo fallegt þegar dýrin eru svona mikið elskuð..sama hvað..ha ha ha

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband