Kveldúlfur er kominn í ...

Ég sé á tölvupóstinum að ég hef misst af miklu í gærkvöldi. Bloggvinafundurinn tókst með slíkum ágætum og greinilegt að þar hefur heyrst bæði bloggbloggblogg og bloogblooogbloog. Ég svaf þetta frábæra kvöld af mér. Ég ætlaði að horfa á fréttirnar á Stöð 2 áður en ég færi af stað, sofnaði og vaknaði ekki fyrr klukkan var langt gengin í ellefu. Þá var ég hálfstúrin og eitthvað svo löt að ég fór að ráða vísbendingakrossgátu Morgunblaðsins. Sat við það fram til miðnættis en þá taldi ég mig hafa náð að ráða gátuna. Reyndar er eitt orðið vitlaust miðað við vísbendinguna en ég hallast að því að krossgátuhöfundur hafi þarna gert mistök. En það kemur í ljós í næstu viku. Ég hvet ykkur bara til að boða fljótt til annars fundar kæru bloggvinir og þá skal þess skyndilega kvöldsvæfa kona útiloka að kveldúlfur komist að henni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalheiður Magnúsdóttir

Það er bara einfaldlega svo gott að sofa allavega finnst mér það þessa dagana.

Aðalheiður Magnúsdóttir, 6.1.2008 kl. 18:02

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Nú er bókaspjallið í gangi á síðunni minni, vildir þú senda inn aths?

Marta B Helgadóttir, 7.1.2008 kl. 08:10

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég tók upplýsta ákvörðun um að mæta ekki, er haldin einhverju Eyvindar og Höllu syndromi þessa dagana.  Ætti að vera við veðurathuganir á Hveravöllum, hvergi kjaft að sjá.  Gleðilegt ár kæra bloggvinkona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.1.2008 kl. 08:55

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Það var leitt að þú skyldir ekki koma, verður vonandi með næst.

Marta B Helgadóttir, 8.1.2008 kl. 01:32

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Komst ekki heldur; reyndar af öðrum ástæðum en Kveldúlfi í kellingunni. Sjáumst síðar!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.1.2008 kl. 20:57

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það var voða gaman....þú kemur bara næst.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.1.2008 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband