Ókosturinn við að heita algengu nafni

Nafnarugl og hugmyndadeyfð

Það er ekki tekið út með sældinni að heita algengu nafni. Auður Haralds sagði eitthvað á þá leið í einni bóka sinna að sumir þjáðust alla ævi vegna hugmyndasneyðar foreldra sinna. Ég hef alltaf verið sammála henni og vorkennt þeim sem koma sér upp ótal kynslóðum Jóna Jónssona eða þegar tvö nöfn skiptast á, menn heita þá ýmist Jón Karlson eða Karl Jónsson. Ég veit að þetta háir mörgum fjölskyldum og hefur beinlínis staðið mörgum manninum fyrir þrifum í þroska og geðprýði.

En aftur að algengum nöfnum. Guðmundur minn hefur mátt þola margt gegnum tíðina sökum nafns síns. Frægasta dæmið er örugglega árásarmálið. Hér kemur sagan af því. Við hjónin, þá reyndar sambýlisfólk, brugðum okkur af bæ til að halda upp á tvítugsafmæli hans Guðmundar og fréttum þegar heim kom að lögreglan hefði komið um kvöldið að leita hans. Við vorum mjög hissa á þessu, enda vissum við ekki til þess að Gummi hefði brotið nokkurn hlut af sér. Eftir hálfgerða andvökunótt fór hann niður á lögreglustöð og fékk að vita að hann væri ákærður fyrir að hafa brotið rúðu í hurð á íbúð á Skúlagötu 61. Tilgangur hans með rúðubrotinu var sá að opna sér leið inn til sextugrar konu sem þar bjó. Lögregluskýrslan tiltók ekki í hvaða tilgangi hann vildi komast inn til konunnar en lesendur geta bara beitt ímyndunaraflinu og getið í eyðurnar. Samkvæmt framburði vitna hét þessi kröftugi maður sem réðst inn í stigaganginn þeirra Guðmundur og bjó á Laugavegi 159.

Þetta passaði við Gumma minn en mannlýsingin var fremur ólík honum nefnilega á þessa leið: Fremur lágvaxinn maður, þykkur um miðjuna og hárið heldur farið að þynnast. Þegar þessi saga gerist var Guðmundur spengilegur og kraftalegur ungur maður með allt sitt hár óskert. Málrekstur gegn honum var því látinn niðurfalla eftir viðtal við rannsóknarlögreglumann daginn eftir. Í annað sinn fékk Gummi ástarbréf frá Svíþjóð. Þar skrifaði ung kona að hann hefði reynst henni seingleymdur eftir nokkurra daga unaðsleg kynni og hún teldi sig því þurfa að láta á það reyna hvort ekki væri hægt að endurnýja kynnin. Það vildi Gumma til happs að hann hafði ekki átt leið um Svíþjóð á þeim tíma sem stúlkan tiltók annars hefði hann sennilega ekki kembt hærurnar eftir að konan hans komst í bréfið. Já, svonalöguðu geta jónar, gunnur og gummar alltaf búist við en Steingerðar og Kolgrímur sleppa blessunarlega við skammt af slíkum misskilningi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Égheiti ANNA og hef alltaf upplifað mig óðruvísi.......en allar Önnur heimsins!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 2.5.2007 kl. 20:30

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já ég var einmitt að blogga um þá furðu mína hvað það eru allt í einu margar konur að blogga og gera alls konar sem heita Katrín..MÍNU nafni!

Ég get svarið að þetta var ekki svona og ég er ekki vissum að mér líki þessi þróun! Sem betur fer er ég sú aleina sem heitir Katrín Snæhólm og það vonandi helst eins lengi og ég lifi. Steingerður er fónt nafn og sérstakt og hæfir þér örugglega mjög vel

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 21:56

3 Smámynd: Svava S. Steinars

Í tölvukerfi Reykjavíkurborgar er ég skráð Svava S. Steinarsdóttir.  Það var allt gott og blessað þar til að Svava S. Svavarsdóttir fór að vinna líka hjá borginni.  Ég fæ vikulega fjölda pósta ætlaða henni, mest brandara, en hún fær alls kyns trúnaðarmál sem tengjast heilbrigðiseftirliti.  Ég ætla að fara fram á að í framtíðinni ráði borgin ekki fólk með svona svipuð nöfn !! 

Svava S. Steinars, 5.5.2007 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband