Þar lágu Danir í því

„Ég er seinheppinn maður það sést best á því ...“ segir í texta gamals dægurlags og mér dettur þessi setning oft í hug einkum þó eftir reynslu eins og þá sem ég varð fyrir í morgun. Ég var á gangi í Kópavogsdalnum með tíkina í stilltu yndislegu veðri. Allt var svo hvítt og hljótt að mig greip einhver hundakæti og ég tók upp á því að valhoppa eftir göngustígnum. Í einni lendingunni lenti ég á svelli sem var vandlega hulið undir snjónum og rann á annað hnéð. Þetta hefði svo sem ekki talist stórmál í mínum gönguferðum ef ekki hefði birst fyrir framan mig einhver mannfýla sem ég get svarið að spratt upp úr jörðinni því hvergi sá ég honum bregða fyrir örskömmu áður. Tíkin greip auðvitað þetta tækifæri til að rykkja í tauminn með þeim afleiðingum að hnykkur kom á efri búk minn og hendurnar lyftust upp í einhverja biðjandi stöðu. Stellingin var þannig að það eina sem eftir var að stynja upp bónorðinu.

Þetta vakti upp sára minningu frá því ég var í landsprófi hérna í denn og tók strætó í skólann. Þrír sætustu strákarnir í skólanum tóku vagninn á sömu stoppistöð og ég. Þetta fannst mér mikill kostur þar til ég var fyrir því að stíga á hálkublett og detta. Ég lenti á hliðinni með hönd undir kinn og engu líkara en ég hefði einfaldlega lagst þarna. Ég hugsaði í örvæntingu: Þú segir eitthvað fyndið og snjallt og reddar þessu. Það eina sem kom upp úr mér var hins vegar: „Ég datt.“ Eftir þetta hlógu töffararnir eins og hýenur í hvert skipti sem þeir sáu mér bregða fyrir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég er svo mikið kvikindi að ég skellihló þegar ég las færsluna þína ... vá, hvað þetta hefur verið fyndið, en að lenda með hönd undir kinn og vera UNGLINGUR!!! Arggggg!  Takk fyrir að bjarga deginum, elskan.

Guðríður Haraldsdóttir, 16.1.2008 kl. 10:14

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ó - hvað ég hló - svona er ég nú illa innrætt

Hrönn Sigurðardóttir, 16.1.2008 kl. 11:07

3 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Steinka mín.  Þetta hefur verið "ævintýri á gönguför". Hvernig ertu í hnénu? Ég segi eins og Gurrí og Hrönn, mér fannst þetta einstaklega fyndið þegar ég las þetta. Voðalegur púki getur maður verið! En á unglingsárunum er þetta háalvarlegt mál. Vonandi, kæra vinkona hefurðu ekki skaðað á þér néð.

Sigurlaug B. Gröndal, 16.1.2008 kl. 12:50

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Kannski er þetta breitt í dag, töffararnir orðnir feitir gamlir kallar og þú getur hlegið.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 16.1.2008 kl. 13:30

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

  Góð saga, ég er jafnilla innrættur púki og aðrir, greinilega... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 16.1.2008 kl. 13:56

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta var þér líkt Silla mín að hafa áhyggjur af mér. Hnéð er hins vegar alveg búið að jafna sig. Til allrar lukku var þetta ekki slæmt fall að öðru leyti en því að það var fyrir þessum manni.

Steingerður Steinarsdóttir, 16.1.2008 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband