2.6.2008 | 14:35
Dorgað við sjónvarpið
Líkt og allir vita hef ég gaman af bögumælum og ambögum ýmiss konar. Í gær heyrði ég sögur af konu sem var nokkuð óðamála og kannski ekki alltaf með öll orðatiltæki á hreinu. Eitt sinn mætti þessi kona venju fremur framlág í vinnu og gaf þessa skýringu á þreytu sinni: „Ég tók vídeóspólu í gærkvöldi og lá svo dorgandi yfir sjónvarpinu í allt gærkvöld og var andvana í alla nótt.“ Þetta finnst mér óstjórnlega skemmtilega að orði komist.
Athugasemdir
Ég þekki líka eina sem m.a. sagði : - Þá vissi ég bara ekki fyrr en það kemur þessi líka Tröll úr heiðskýru lofti, - og við þustum öll inn, annars veit ég ekkert betra en að vera á skíðum út í "guðs grænni náttúrunni". -
En það toppar ekkert þessa dorgandi, andvana konu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.6.2008 kl. 18:52
já, vinkona mín sagði alltaf; öllu er best, skotið á frest....
svo sagði systir mín í dag; þvílíku skýjakljúfarnir...ætlaði að segja; þvílíku skýjabakkarnir...
alva (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 21:44
Hver skyldi aflinn hafa verið?Hehehehehehehe þetta er alveg milljón! Þetta er svona "Bibbu á Brávallagötu" syndrome!
Sigurlaug B. Gröndal, 2.6.2008 kl. 21:49
Ég á eina svona vinkonu! Hún er ótæmandi fjársjóður fliss.......... Hún talar um "Glennu Gloss" og við vitum hvað hún meinar en kannsi enginn annar......
Hrönn Sigurðardóttir, 3.6.2008 kl. 00:51
Ég kannast við eina sem kemur aldrei fyrr en eftir djúpan disk.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2008 kl. 10:03
þið eruð óborganlegar

Marta B Helgadóttir, 5.6.2008 kl. 21:38
HUH (= lol, þe. hlegið upp hátt)
Það er svo gaman að svona bulli
Gúnna, 8.6.2008 kl. 15:06
Skyldi hafa bitið á hjá henni???????
Linda Samsonar Gísladóttir, 8.6.2008 kl. 16:02
Muniði eftir setningunni úr Sódómu þegar pilturinn segir við stúlkuna í kulinu úti á svölum: " Láttu ekki slá um þig, þú gætir forskalast"
Þetta er uppáhalds setning mín úr Íslenskri kvikmyndasögu
Linda Samsonar Gísladóttir, 8.6.2008 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.