Rauðklædda konan

downloadÞað þarf sterk bein til að standa við sannfæringu sína, hvika aldrei frá því sem maður telur réttast. Í raun eru ekki margar slíkar manneskjur í heiminum ef vel er að gáð. Sumar eru svo heppnar að hugmyndafræði samfélagsins eltir þær uppi og í kjölfarið eru þær krýndar hetjur, snillingar og mannvinir. Birna Þórðardóttir er allt þetta en líka kona, viðkvæm á stundum en þá hlið varð hún að bæla. Til að gegna sínu hlutverki sem samviska þessa þjóðfélags varð hún að klæðast töffaranum, eins og þykkum leðurjakka.

Ég man vel eftir Birnu, sá hana oft í bænum, heyrði af henni sögur og dáðist að henni úr fjarlægð. Mér fannst hún ótrúlega flott. Hávaxin, eins og ég og bar ævinlega höfuðið hátt. Klæddi sig nákvæmlega eins og henni hentaði best. Lét ekki segja sér að rautt væri eingöngu litur fyrir ungar stúlkur og stutt pils ekki við hæfi eftir fertugsaldurinn. Mig langaði að kynnast henni en var of feimin til að tala við hana. Nú sé ég eftir að hafa ekki hrist af mér uppburðarleysið. Allir vissu að hún var baráttukona, kurteis og rökföst með afbrigðum, manna fróðust um miðbæinn og einn skemmtilegasti leiðsögumaður landsins. Margir höfðu á henni illan bifur, töldu hana öfgafulla og jafnvel beinlínis hættulega. Var, er og verður Birna sýnir hversu auðvelt er að umsnúa orðum og gerðum, gera úr fólki eitthvað sem það alls ekki er. Að rík réttlætiskennd getur verið dragbítur og dýrkeypt þeim sem hafa hana til að bera.

Ingibjörg Hjartardóttir hefur gefið okkur dásamlega, óvenjulega og áhrifamikla ævisögu. Var, er og verður Birna er frjó og skemmtileg mannlýsing, skreytt einstökum ljósmyndum og sett upp á frumlegan hátt. Það er ljóst að Birna glímir við alzheimer þótt það sé aldrei sagt og Ingibjörg skrifar af einstakri virðingu og hluttekningu. Hún er samt aldrei væmin og sleppir algjörlega að velta sér upp úr hlutunum eins og hendir suma höfunda. Fyrir vikið nær þessi saga að smeygja sér að innstu hjartarótum manns og setjast þar að. Ég sat með tárin í augunum yfir mörgum köflum og grét svolítið þegar ég lagði hana frá mér. En mikið er ég glöð að ég las þessa bók.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband