19.5.2008 | 11:30
Hraðlestur er ekki alltaf til góðs
Ég var að ljúka við þá stórfínu bók Kuðungakrabbana í gærkvöldi og las síðustu blaðsíðurnar kannski svolítið hratt. Á einum stað var talað um róna í kirkjuskipinu og ég velti fyrir mér hvers vegna í ósköpunum menn fjarlægðu ekki rónann úr kirkjunni. Þar fyndist mér hann ekki eiga heima. Það var ekki fyrr en eftir tvær blaðsíður í viðbót að ég áttaði mig á því að þarna var verið að tala um ró þ.e.a.s. frið. Á greinilega ekkert erindi á hraðlestrarnámskeið.
Athugasemdir
Hahahaha, er nýbúin að lesa hana þessa. Ágætis lesning.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.5.2008 kl. 11:36
jahá, var það þá ró sbr. friður...var það ekki svona skrúfudæmi ( róin - rána eða róna... ) ....
segi svona...
alva (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 11:49
tí hí
Einar Bragi Bragason., 19.5.2008 kl. 13:19
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 19.5.2008 kl. 16:01
Hahaha. En hvernig fannst þér svo bókin? Er á lokasíðunum núna; búin að lesa Berlínaraspirnar eftir sama höfund. Bókakveðjur til þín ...
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.5.2008 kl. 17:58
Marta B Helgadóttir, 21.5.2008 kl. 09:03
Fínasta bók, ég var ánægð með hana!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.5.2008 kl. 09:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.